Starfsleyfi til kynningar fyrir stóra spennistöð Landsnets í Varmahlíð

Í samræmi við reglugerð nr. 550/2018, um losun frá atvinnurekstri og mengunarvarnareftirlit, eru starfsleyfisskilyrði til kynningar hjá Heilbrigðiseftirliti Norðurlandsvestra á Sauðárkróki að Sæmundargötu 1, fyrir stóra spennistöð í Varmahlíð, Skagafirði. Um verður að ræða  viðbótar spennir inn á lóð fyrir tengivirki Landsnets, þar sem fyrir er stór spennir. Fyrirhuguð starfsleyfisskilyrði fyrir starfsemina eru samræmd starfsleyfisskilyrði Umhverfisstofnunar og heilbrigðiseftirlita. Hægt er að gera athugasemd við starfsleyfisskilyrðin fyrir spennistöð Landsnets á Varmahlíð til 16. júní nk. og skulu þau berast skriflega til Heilbrigðiseftirlits Norðurlands vestra. Hér má sjá umsókn um starfsleyfi.