Starfsleyfi til kynningar fyrir bensínstöð ÓB að Borgarflöt 31 á Sauðárkróki

Í samræmi við reglugerð nr. 550/2018, um losun frá atvinnurekstri og mengunarvarnareftirlit, eru starfsleyfisskilyrði Olíuverslunar  Íslands hf. kt. 500269-3249, til kynningar hjá Heilbrigðiseftirliti Norðurlands vestra á Sauðárkróki að Sæmundargötu 1, fyir bensínstöð Olíuverslunar Íslands / ÓB. Um er að ræða nýja sjálfsafgreiðslustöð sem fyrirhugað er að reisa að Borgarflöt 31. Hér má sjá afstöðumynd og mynd af  olíugildru og tönkum sem fyrirhugað er að koma fyrir á lóðinni.

Fyrirhugað er að gefa út starfsleyfið til 12 ára, samkvæmt meðfylgjandi starfsleyfisskilyrðum. Hægt er að gera athugasemdir við starfsleyfisskilyrðin til 11. mars 2020. Athugasemdir skal gera skriflega og senda til Heilbrigðiseftirlits Norðurlands vestra.