Sæmundargötu 1, 550 Sauðárkróki
Starfsleyfi til kynningar fyrir aðstöðu Vegagerðarinnar á Hvammstanga
vegna viðgerðaraðstöðu, aðra almenna aðstöðu, tækja- og áhaldageymslu
Í samræmi við reglugerð nr. 550/2018, um losun frá atvinnurekstri og mengunarvarnareftirlit, eru starfsleyfisskilyrði til kynningar hjá Heilbrigðiseftirliti Norðurlands vestra á Sauðárkróki að Sæmundargötu 1, fyrir Vegagerðina á Hvammstanga vegna viðgerðaraðstöðu, aðstöðu og tækjageymslu að Höfðabraut, 530 Hvammstanga. Um er að ræða viðgerða-, viðhalds-, þvotta- og geymsluaðstöðu fyrir Vegagerðina á Hvammstanga og annað er starfið varðar. Fyrirhuguð starfsleyfisskilyrði fyrir starfsemina eru almenn starfsleyfisskilyrði fyrir mengandi starfsemi. Hægt er að gera athugasemdir við starfsleyfisskilyrðin til 28. október nk. Athugasemdir skal gera skriflega og senda til Heilbrigðiseftirlits Norðurlands vestra.
Starfsleyfi til kynningar fyrir bílaleigu Höldurs ehf. á Sauðárkróki
Endurnýjun á starfsleyfi fyrir þvottahúsið Perluna á Hvammstanga
Endurnýjun á starfsleyfi fyrir Trésmiðjuna Borg á Sauðárkróki
Starfsleyfi til kynningar fyrir vélaþjónustuna að Messuholti
Starfsleyfi til kynningar Hreingerningastöð Ágústs
Starfsleyfi til kynningar fyrir Fiskmarkað Snæfellsbæjar á Skagaströnd
Starfsleyfi til kynningar fyrir verkstæðið að Hóli
Starfsleyfi til kynningar fyrir Vélaverkstæði Hjartar Eiríkssonar
vegna véla og bifreiðaverkstæði að Búlandi 1 og 3 á Hvammstanga
Í samræmi við reglugerð nr. 550/2018, um losun frá atvinnurekstri og mengunarvarnareftirlit, eru starfsleyfisskilyrði til kynningar hjá Heilbrigðiseftirliti Norðurlands vestra á Sauðárkróki að Sæmundargötu 1, fyrir Vélaverkstæði Hjartar Eiríkssonar, kt. 520882-0219 vegna véla og bifreiðaverkstæði að Búlandi 1 og 3, 530 Hvammstanga. Um er að ræða vélaviðgerðir, bifvélaviðgerðir og annað er starfið varðar. Fyrirhuguð starfsleyfisskilyrði fyrir starfsemina eru sértæk starfsleyfisskilyrði, fyrir mengandi starfsemi. Hægt er að gera athugasemdir við starfsleyfisskilyrðin til 18. júlí nk. Athugasemdir skal gera skriflega og senda til Heilbrigðiseftirlits Norðurlands vestra.