Hér með eru auglýst drög að tímabundnu starfsleyfi til kynningar fyrir niðurrif húsnæðis að Brennigerði (F2139784). Umsækjandi er Steypustöð Skagafjarðar, kt. 671272-2349 og ábyrgðarmaður er Ásmundur Pálmasson. Umsóknin barst heilbrigðiseftirlitinu 07. september 2026.

Heilbrigðiseftirlit Norðurlands vestra gefur út tímabundið starfsleyfi, vegna niðurrifsins. Leyfið er gefið út skv. lögum um hollustuhætti og mengunarvarnir nr. 7/1998. Starfsleyfisskilyrðin miðast við starfsleyfisskilyrði fyrir niðurrif mannvirkja, m.a. þar sem er asbest.

Starfsleyfisskilyrði fyrir starfsemina ber að auglýsa í minnst 4 vikur skv. ákvæðum 5. gr reglugerðar nr. 550/2018 um losun frá atvinnurekstri og mengunarvarnareftirlit.

Athugasemdir skulu berast á netfangið hnv@hnv.is fyrir 05. október 2026.