Tillaga að starfleyfi fyrir flugeldasýningu Unglingalandsmóts UMFÍ á Sauðárkróki.

Sótt var um starfleyfið þann 05. júní, 2026 og er ábyrgðarmaður Valdimar Pétursson.

Heilbrigðiseftirlit Norðurlands vestra veitir Björgunarsveitinni Skagfirðingasveit leyfi til að halda flugeldasýningu þann 02. ágúst 2026, kl. 23:00-23:30, staðsetning er á Nöfum við Grænuklauf. Þetta leyfi er veitt í samræmi við eftirfarandi lög og reglugerðir fyrir skráningu flugeldasýninga. Ef breytingar verða á starfseminni skal tilkynna það til Heilbrigðiseftirlitsins.

Starfsleyfisskilyrði fyrir starfsemina ber að auglýsa í minnst 4 vikur og skulu athugasemdir berast á netfangið hnv@hnv.is fyrir 06. júlí 2026.