Hér með eru auglýst drög að nýju starfsleyfi fyrir smáhýsa-, hjólhýsa-, og tjaldsvæði Aurora Igloos ehf. Umsækjandi er Aurora Igloos ehf. kt. 460417-0580 og sækir Árni Freyr Magnússon fyrir hönd fyrirtækisins. Umsóknin barst heilbrigðiseftirlitinu þann 17. febrúar 2026.
Heilbrigðiseftirlit Norðurlands vestra gefur út starfsleyfi, sem nær til hollustuhátta. Leyfið er gefið út skv. lögum nr. 7/1998 um hollustuhætti og mengunarvarnir. Á þeim byggja eftirfarandi reglugerðir: nr. 903/2024 um hollustuhætti, nr. 536/2001 um neysluvatn, nr. 798/1999 um fráveitur og skólp, ásamt nr. 803/2023 um meðhöndlun úrgangs.
Starfsleyfisskilyrði fyrir starfsemina ber að auglýsa í minnst 4 vikur skv. ákvæðum 9. gr reglugerðar nr. 903/2024 um hollustuhætti.
Starfsleyfisskilyrðin munu byggja á: Starfleyfisskilyrði fyrir hjólhýsa-, smáhýsa, og tjaldsvæði. (ust.is).
Hægt er að gera athugasemdir við starfsleyfisskilyrðin. Athugasemdir skulu berast á netfangið hnv@hnv.is, eða skriflega fyrir 17. mars 2026.