Hér með eru auglýst drög að endurnýjun starfsleyfis fyrir Skeiðsfossvirkjun, 570 Fljót. Umsækjandi er Orkusalan ehf. kt. 560306-1130 og barst umsóknin heilbrigðiseftirlitinu þann 26. janúar 2026.
Heilbrigðiseftirlit Norðurlands vestra gefur út starfsleyfi, sem nær til mengunarvarna. Leyfið er gefið út skv. lögum nr. 7/1998 um hollustuhætti og mengunarvarnir. Á þeim byggja m.a. eftirfarandi reglugerðir: nr. 550/2018 um losun frá atvinnurekstri og mengunarvarnareftirlit, og nr. 884/2017 um varnir gegn olíumengun frá starfsemi í landi.
Starfsleyfisskilyrðin munu byggja á: Starfsleyfisskilyrði fyrir stórar spennustöðvar. (ust.is).
Hægt er að gera athugasemdir við starfsleyfisskilyrðin. Athugasemdir skulu berast á netfangið hnv@hnv.is, eða skriflega fyrir 27. febrúar 2026.