Hér með eru auglýst drög að endurnýjun starfsleyfis fyrir fjóra fjallaskála (Haugakvíslarskáli, Bleikskvíslarskáli, Mönguhólsskáli, og Lánborg). Umsækjandi er Húnaþing vestra. kt. 540598-2909 og barst umsóknin heilbrigðiseftirlitinu þann 25. nóvember 2025.
Heilbrigðiseftirlit Norðurlands vestra gefur út starfsleyfi, sem nær til hollustuhátta. Leyfið er gefið út skv. lögum nr. 7/1998 um hollustuhætti og mengunarvarnir. Á þeim byggja eftirfarandi reglugerðir: nr. 903/2024 um hollustuhætti, nr. 536/2001 um neysluvatn, nr. 798/1999 um fráveitur og skólp, ásamt nr. 803/2023 um meðhöndlun úrgangs.
Starfsleyfisskilyrði fyrir starfsemina ber að auglýsa í minnst 4 vikur skv. ákvæðum 9. gr reglugerðar nr. 903/2024 um hollustuhætti.
Starfsleyfisskilyrðin munu byggja á: Starfleyfisskilyrði fyrir fjallaskála, nema sæluhús. (ust.is).
Hægt er að gera athugasemdir við starfsleyfisskilyrðin. Athugasemdir skulu berast á netfangið hnv@hnv.is, eða skriflega fyrir 27. febrúar 2026.