Hér með eru auglýst drög að endurnýjun starfsleyfis fyrir tjaldsvæðið Langafit, 531 Laugarbakka. Umsækjandi er Regína Þórarinsdóttir. kt. 051154-2909 og barst umsóknin heilbrigðiseftirlitinu þann 27. desember 2025.

Heilbrigðiseftirlit Norðurlands vestra gefur út starfsleyfi, sem nær til hollustuhátta. Leyfið er gefið út skv. lögum nr. 7/1998 um hollustuhætti og mengunarvarnir. Á þeim byggja eftirfarandi reglugerðir: nr. 903/2024 um hollustuhætti, nr. 536/2001 um neysluvatn, nr. 798/1999 um fráveitur og skólp, ásamt nr. 803/2023 um meðhöndlun úrgangs.

Starfsleyfisskilyrði fyrir starfsemina ber að auglýsa í minnst 4 vikur skv. ákvæðum 9. gr reglugerðar nr. 903/2024 um hollustuhætti.

Starfsleyfisskilyrðin munu byggja á: Starfleyfisskilyrði fyrir hjólhýsa-, smáhýsa, og tjaldsvæði. (ust.is).

Hægt er að gera athugasemdir við starfsleyfisskilyrðin. Athugasemdir skulu berast á netfangið hnv@hnv.is, eða skriflega fyrir 26. febrúar 2026.