Endurnýjun á starfsleyfi Olís til kynningar fyrir bensínstöð félagsins á Laugarbakka, 531 Hvammstangi
Í samræmi við reglugerð nr. 550/2018, um losun frá atvinnurekstri og mengunarvarnareftirlit og reglugerð nr 884/2017 um varnir gegn olíumengun frá starfsemi í landi, eru starfsleyfisskilyrði fyrir Olís/ÓB ehf, kt. 500269-3249 til kynningar hjá Heilbrigðiseftirliti Norðurlands vestra á Sauðárkróki að Sæmundargötu 1, fyrir bensínstöð Olís á Laugarbakka. Um er að ræða endurnýjun á leyfi, fyrir bensínstöðina á Laugarbakka og fyrirhugað er að gefa út starfsleyfið til 12 ára, samkvæmt meðfylgjandi almennum starfsleyfisskilyrðum og sértækum starfsleyfisskilyrðum.
Hægt er að gera athugasemdir við starfsleyfisskilyrðin til 29. desember 2025. Athugasemdir skal gera skriflega og senda til Heilbrigðiseftirlits Norðurlands vestra.