Tillaga að starfleyfi fyrir flugeldasýningu á Hvammstanga.

Sótt var um starfleyfið þann 21. nóvember 2025 og er ábyrgðarmaður Ævar Smári Marteinsson.

Heilbrigðiseftirlit Norðurlands vestra veitir Björgunarsveitinni Húnar leyfi til að halda flugeldasýningu þann 31. desember 2025, kl. 21:00-21:30, á norðurbryggju, á hafnarsvæði Hvammstanga. Þetta leyfi er veitt í samræmi við eftirfarandi lög og reglugerðir fyrir skráningu flugeldasýninga. Ef breytingar verða á starfseminni skal tilkynna það til Heilbrigðiseftirlitsins.

Starfsleyfisskilyrði fyrir starfsemina ber að auglýsa í minnst 4 vikur og skulu athugasemdir berast á netfangið hnv@hnv.is fyrir 19. desember 2025.