Hér með eru auglýst drög að starfsleyfisskilyrðum fyrir Döggblek Studio kt. 1402023390, Grundargata 16, 580 Siglufjörður. Umsóknin barst heilbrigðiseftirlitinu 16. nóvember 2025 og sækir Thelma Dögg Þorsteinsdóttir um starfsleyfið.

Í umsókn er sótt um starfsleyfi fyrir húðflúrstofu.

Heilbrigðiseftirlit Norðurlands vestra gefur út starfsleyfi, sem nær til hollustuhátta. Leyfið er gefið út skv. lögum nr. 7/1998 um hollustuhætti og mengunarvarnir. Einnig út frá reglugerðum nr. 903/2024 um hollustuhætti og nr. 803/2023 um meðhöndlun úrgangs.

Starfsleyfisskilyrði fyrir starfsemina ber að auglýsa í minnst 4 vikur skv. ákvæðum 9. gr reglugerðar nr. 903/2024 um hollustuhætti. Starfsleyfisskilyrðin byggjast á: Starfsleyfisskilyrði fyrir húðgötun í erynasnepla, líkamsgötun, og húðflúr (ust.is).

Athugasemdir skulu berast á netfangið hnv@hnv.is fyrir 19. desember, 2025.