Tillaga að starfleyfi fyrir tvær flugeldasýningar á Siglufirði.

Sótt var um starfleyfið þann 09. september og er ábyrgðarmaður Magnús Magnússon.

Heilbrigðiseftirlit Norðurlands vestra veitir Björgunarsveitinni Strákar leyfi til að halda flugeldasýningu þann 31. desember 2025, kl. 20:00-23:30 og þann 6. janúar, kl. 17:00-19:00. Staðsetning flugeldasýninga er á Vesturtanga á Siglufirði. Þetta leyfi er veitt í samræmi við eftirfarandi lög og reglugerðir fyrir skráningu flugeldasýninga. Ef breytingar verða á starfseminni skal tilkynna það til Heilbrigðiseftirlitsins.

Starfsleyfisskilyrði fyrir starfsemina ber að auglýsa í minnst 4 vikur og skulu athugasemdir berast á netfangið hnv@hnv.is fyrir 16. desember 2025.