Hér með eru auglýst drög að starfsleyfisskilyrðum fyrir Hvítserkur Guesthouse. kt. 170569-5719, Súluvellir ytri, 531 Hvammstangi. Umsóknin barst heilbrigðiseftirlitinu 1. október 2025 og sækir Halldór Jón Pálsson um fyrir hönd fyrirtækisins.

Í umsókn er sótt um starfsleyfi fyrir minna gistiheimili.

Heilbrigðiseftirlit Norðurlands vestra gefur út starfsleyfi, sem nær til hollustuhátta. Leyfið er gefið út skv. lögum nr. 7/1998 um hollustuhætti og mengunarvarnir. Á þeim byggja eftirfarandi reglugerðir: nr. 903/2024 um hollustuhætti, nr. 536/2001 um neysluvatn, nr. 798/1999 um fráveitur og skólp, ásamt nr. 803/2023 um meðhöndlun úrgangs.

Starfsleyfisskilyrði fyrir starfsemina ber að auglýsa í minnst 4 vikur skv. ákvæðum 9. gr reglugerðar nr. 903/2024 um hollustuhætti.

Starfsleyfisskilyrðin munu byggja á: Starfsleyfisskilyrði fyrir gististaði, minna gistiheimli (ust.is).

Athugasemdir skulu berast á netfangið hnv@hnv.is fyrir 11. nóvember 2025.