Hér með eru auglýst drög að starfsleyfisskilyrðum fyrir Bifreiðaþjónustu Marvins ehf. kt. 480425-0300, sem sér um rekstur hjólbarðaverkstæðis. Umsóknin barst heilbrigðiseftirlitinu 15. september 2025 og sækir Friðrik Marvin Björnsson um fyrir hönd fyrirtækisins.
Í umsókn er sótt um starfsleyfi fyrir dekkjaverkstæði og smáviðgerðir.
Heilbrigðiseftirlit Norðurlands vestra gefur út starfsleyfi, sem nær til mengandi starfsemi. Leyfið er gefið út skv. lögum um hollustuhætti og mengunarvarnir nr. 7/1998. Starfsleyfisskilyrði munu byggja á: Almenn starfsleyfisskilyrði fyrir mengandi starfsemi (ust.is) og sértæk starfsleyfisskilyrði fyrir hjólbarðaverkstæði.
Starfsleyfisskilyrði fyrir starfsemina ber að auglýsa í minnst 4 vikur skv. ákvæðum 5.gr reglugerðar nr. 550/2018 um losun frá atvinnurekstri og mengunarvarnareftirlit.
Athugasemdir skulu berast á netfangið hnv@hnv.is fyrir 11. nóvember 2025.