Hér með eru auglýst drög að starfsleyfisskilyrðum fyrir RH Þjónusta slf. kt. 040378-3089 , vegna hjólbarðaviðgerða, þ.m.t. umfelgun og viðgerðir. Umsóknin barst heilbrigðiseftirlitinu 4. apríl 2025 og sækir Róar Örn Hjaltason um fyrir hönd fyrirtækisins.

Í umsókn er sótt um starfsleyfi fyrir hjólbarðaþjónustu að Borgarröst 3, 550 Sauðárkróki.

Heilbrigðiseftirlit Norðurlands vestra gefur út starfsleyfi, sem nær til mengandi starfsemi. Leyfið er gefið út skv. lögum um hollustuhætti og mengunarvarnir nr. 7/1998. Starfsleyfisskilyrðin munu byggja á almennum skilyrðum fyrir mengandi starfsemi og sértækum skilyrðum fyrir hjólbaraðverkstæði: Almenn starfsleyfisskilyrði fyrir mengandi starfsemi (ust.is) og sértæk starfsleyfisskilyrði fyrir Hjólbarðaverkstæði.

Starfsleyfisskilyrði fyrir starfsemina ber að auglýsa í minnst 4 vikur skv. ákvæðum 5.gr reglugerðar nr. 550/2018 um losun frá atvinnurekstri og mengunarvarnareftirlit.

Athugasemdir skulu berast á netfangið hnv@hnv.is fyrir 8.maí 2025.