Hér með eru auglýst drög að starfsleyfisskilyrðum fyrir GN ehf. kt. 6212160740, sem sér um rekstur skólabifreiða, hópferðabifreiða og viðgerðir á þeim . Umsóknin barst heilbrigðiseftirlitinu 18. mars 2025 og sækir Jón Ragnar Gíslason um fyrir hönd fyrirtækisins.
Í umsókn er sótt um starfsleyfi fyrir verkstæðisaðstöðu og rekstri hópferðabifreiða og skólabíla.
Heilbrigðiseftirlit Norðurlands vestra gefur út starfsleyfi, sem nær til mengandi starfsemi. Leyfið er gefið út skv. lögum um hollustuhætti og mengunarvarnir nr. 7/1998. Starfsleyfisskilyrði munu byggja á almennum skilyrðum fyrir mengandi starfsemi og sértæk skilyrði fyrir rekstri hópferðabifreiða: Almenn starfsleyfisskilyrði fyrir mengandi starfsemi (ust.is) og sértæk starfsleyfisskilyrði fyrir rekstri hópferðabifreiða og viðgerðaraðstöðu .
Starfsleyfisskilyrði fyrir starfsemina ber að auglýsa í minnst 4 vikur skv. ákvæðum 5.gr reglugerðar nr. 550/2018 um losun frá atvinnurekstri og mengunarvarnareftirlit.
Athugasemdir skulu berast á netfangið hnv@hnv.is fyrir . mars 2025.