Hér með eru auglýst drög að starfsleyfi fyrir starfsemi Rækjuvinnslunnar Meleyri,  kt 661009-1950, vegna leyfis til vinnslu á 200-500 tonn/ári af pillaðir rækju að Brekkugötu 4, 530 Hvammstanga. Umsóknin barst heilbrigðiseftirlitinu 20. mars 2025 og  sótti Baldvin Þór Bergþórsson um leyfið fyrir hönd Meleyrar.

Heilbrigðiseftirlit Norðurlands vestra gefur út starfsleyfi til 12 ára, sem nær til mengandi þátta starfseminnar. Leyfið er gefið út skv. lögum um hollustuhætti og mengunarvarnir nr. 7/1998. Starfsleyfisskilyrði munu byggja á almennum skilyrðum fyrir mengandi starfsemi: Almenn starfsleyfisskilyrði fyrir mengandi starfsemi (ust.is) og starfsleyfisskilyrði fyrir fiskvinnslu m.a. rækjuvinnslu, Starfsleyfisskilyrði fyrir Rækjuvinnslu Meleyrar í framhaldinu verður gefið út leyfi sbr. lögum um matvæli nr. 93/1995.

Starfsleyfisskilyrði fyrir starfsemina ber að auglýsa í minnst 4 vikur skv. ákvæðum 5.gr reglugerðar nr. 550/2018 um losun frá atvinnurekstri og mengunarvarnareftirlit.

Athugasemdir skulu berast á netfangið hnv@hnv.is fyrir 23 apríl 2025.

Sigríður Hjaltadóttir

heilbrigðisfulltrúi