Hér með eru auglýst drög að tímabundnu starfsleyfi til kynningar fyrir niðurrif íbúðarhúss að Efra-Ási 551 Skagafjörður, kt 241069-8759. Umsóknin barst heilbrigðiseftirlitinu 20. janúar 2025 og sótti Árni Sverrisson um leyfið fyrir hönd hans og Heiðbjartar Hlínar.
Heilbrigðiseftirlit Norðurlands vestra gefur út tímabundið starfsleyfi, vegna niðurrifsins. Leyfið er gefið út skv. lögum um hollustuhætti og mengunarvarnir nr. 7/1998. Starfsleyfisskilyrði miðast við starfsleyfisskilyrði fyrir niðurrif mannvirkja, m.a. þar sem er asbest: Niðurrif íbúðarhúss að Efra-Ási, 551 Skagafjörður. Drög að starfsleyfi til kynningar og í framhaldinu verður gefið út starfsleyfi sbr. reglugerð nr. 550/2018 um losun frá atvinnurekstri og mengunarvarnareftirlit.
Starfsleyfisskilyrði fyrir starfsemina ber að auglýsa í minnst 4 vikur skv. ákvæðum 5. gr reglugerðar nr. 550/2018 um losun frá atvinnurekstri og mengunarvarnareftirlit.
Auglýsingin var birt þann 20. janúar og tekið er við athugasemdum til 17. febrúar 2025.