Hér með eru auglýst drög að endurnýjuðum starfsleyfisskilyrðum fyrir starfsemi Vélfag ehf. kt. 410995-3019, vegna vélsmiðju og vélasamsetningar á Múlavegi 18 Ólafsfirði. Umsókn barst 5. nóvember 2024 frá fyrirtækinu og sækir Trausti Árnason um starfsleyfi, fyrir hönd fyrirtækisins

Í umsókn er sótt um starfsleyfi fyrir vélsmiðju og vélasamsetningar fyrir matvælaiðnað og sótt er um að leyfið gildi til 12 ára eða til ársins 2036.

Heilbrigðiseftirlit Norðurlands vestra gefur út starfsleyfi sem nær til mengandi starfsemi. Leyfið er gefið út skv. lögum um hollustuhætti og mengunarvarnir nr. 7/1998. Starfsleyfisskilyrðin sem samþykkt verða byggja á starfsleyfisskilyrðum fyrir blikk og málmsmíðaverkstæði: Starfsleyfisskilyrði blikk- og málmsmíðaverkstæða (ust.is)

Athugasemdir skulu berast á netfangið hnv@hnv.is fyrir 18. desember 2024.