Hér með eru auglýst drög að endurnýjuðu starfsleyfi fyrir starfsemi Vélfags ehf. kt 410995-3019, vegna vélsmiðju og vélasamsetningar fyrir matvælaiðnað að Múlavegi 18, Ólafsfirði. Umsóknin barst heilbrigðiseftirlitinu 5. nóvember 2024 og sækir Trausti Árnason um fyrir hönd fyrirtækisins.
Í umsókn er sótt um vélsmiðju og vélasamsetningar fyrir matvælaframleiðslu til 12 ára eða til ársins 2036.
Heilbrigðiseftirlit Norðurlands vestra gefur út starfsleyfi sem nær til mengandi starfsemi. Leyfið er gefið út skv. lögum um hollustuhætti og mengunarvarnir nr. 7/1998. Starfsleyfisskilyrði munu byggja á skilyrðum fyrir blikk- og málmsíðaverkstæði: Starfsleyfisskilyrði fyrir lítil blikk- og málmsmíðaverkstæði – Copy (1).pdf (ust.is)
Starfsleyfisskilyrði fyrir starfsemina ber að auglýsa í minnst 4 vikur skv. ákvæðum 5.gr reglugerðar nr. 550/2018 um losun frá atvinnurekstri og mengunarvarnareftirlit.
Athugasemdir skulu berast á netfangið hnv@hnv.is fyrir 18. desember 2024.