Hér með eru auglýst drög að starfsleyfi fyrir starfsemi Þjónustumiðstöðvar Húnabyggðar ehf. kt 650422-2520, vegna þjónustumiðstöðvar sveitarfélagsins Húnabyggðar og aðstöðu fyrir vinnuskóla að Ægisbraut 1 Blönduósi. Umsóknin barst heilbrigðiseftirlitinu 19. nóvember 2024 og sækir Óli Valur Guðmundsson um fyrir hönd sveitarfélagsins.
Í umsókn er sótt um starfsleyfi fyrir þjónustumiðstöð sveitarfélagsins Húnabyggðar og aðstöðu fyrir vinnuskóla.
Heilbrigðiseftirlit Norðurlands vestra gefur út starfsleyfi til 12 ára, sem nær til mengandi starfsemi. Leyfið er gefið út skv. lögum um hollustuhætti og mengunarvarnir nr. 7/1998. Starfsleyfisskilyrði munu byggja á almennum skilyrðum fyrir mengandi starfsemi: Almenn starfsleyfisskilyrði fyrir mengandi starfsemi (ust.is) og Starfsleyfisskilyrði fyrir skóla og kennslustaði ætluð börnum og fullorðnum 6 eða fleiri eftir því sem við á.
Starfsleyfisskilyrði fyrir starfsemina ber að auglýsa í minnst 4 vikur skv. ákvæðum 5.gr reglugerðar nr. 550/2018 um losun frá atvinnurekstri og mengunarvarnareftirlit.
Athugasemdir skulu berast á netfangið hnv@hnv.is fyrir 18. desember 2024.