Starfsleyfi til kynningar fyrir Snorra Árnason vegna útleigu á sumarbústað.

Í samræmi við reglugerð um hollustuhætti nr. 903/2024, um hollustuhætti, eru starfsleyfisskilyrði til kynningar hjá Heilbrigðiseftirliti Norðurlands vestra á Sauðárkróki að Sæmundargötu 1, fyrir Snorra Árnason, kt. 150279 5429. Um er að ræða nýtt starfsleyfi vegna útleigu á sumarhúsi að Þverá II, þar sem fyrirhugað er að selja gistingu í flokki II. Starfsleyfisskilyrði fyrir starfsemina eru samræmd starfsleyfisskilyrði fyrir minni gististaði.

Hægt er að gera athugasemdir við starfsleyfisskilyrðin, til 7. nóvember nk, en það er í samræmi við 9. gr. reglugerðar um hollusthætti nr. 903/2024. Athugasemdir skal gera skriflega og senda til Heilbrigðiseftirlits Norðurlands vestra.