Starfsleyfi til kynningar fyrir Genís hf.

Í samræmi við reglugerð nr. 550/2018, um losun frá atvinnurekstri og mengunarvarnareftirlit, eru starfsleyfisskilyrði til kynningar hjá Heilbrigðiseftirliti Norðurlands vestra á Sauðárkróki að Sæmundargötu 1, fyrir Genís hf. Gránugötu 17 á Siglufirði . kt. 610205 0890. Um er að ræða endurnýjun á starfsleyfi vegna þátta sem snúa að framleiðslu, markaðssetningu og umhverfismála sbr. lög nr 7/1998 um hollustuhætti og mengunarvarnir og lög nr. 93/1995 um matvæli. Hér að neðan eru fyrirhuguð starfsleyfisskilyrði fyrir starfsemina sem eru til kynningar.

Hægt er að gera athugasemdir við starfsleyfisskilyrði fyrir verkstæðið, til 27. október nk. Athugasemdir skal gera skriflega og senda til Heilbrigðiseftirlits Norðurlands vestra.

 

Starfsleyfissk fyrir Genís 2024 (1)