Starfsleyfi til kynningar fyrir dekkja og viðgerðaþjónustu Hafþórs smára Gylfasonar fyrir bifreiðar á Sauðárkróki

Í samræmi við reglugerð nr. 550/2018, um losun frá atvinnurekstri og mengunarvarnareftirlit, eru starfsleyfisskilyrði til kynningar hjá Heilbrigðiseftirliti Norðurlands vestra á Sauðárkróki að Sæmundargötu 1, fyrir verkstæði Hafþórs Smára Gylfasonar. Um er að ræða nýtt starfsleyfi vegna flutnings á verkstæðinu sem fyrirhugað er að starfrækja framvegis  að Borgarteig 4 C. Fyrirhuguð starfsleyfisskilyrði fyrir starfsemina eru samræmd starfsleyfisskilyrði fyrir bifreiðaverkstæði og skyldan rekstur.

Hægt er að gera athugasemdir við starfsleyfisskilyrði fyrir verkstæðið, til 26. september nk. Athugasemdir skal gera skriflega og senda til Heilbrigðiseftirlits Norðurlands vestra.