Endurnýjun á starfsleyfi Orkunnar til kynningar fyrir bensínstöð félagsins við Skagfirðingabraut á Sauðárkróki

Í samræmi við reglugerð nr. 550/2018, um losun frá atvinnurekstri og mengunarvarnareftirlit, eru starfsleyfisskilyrði fyrir Orkuna IS ehf, kt. 680319 0730 til kynningar hjá Heilbrigðiseftirliti Norðurlands vestra á Sauðárkróki að Sæmundargötu 1, fyrir bensínstöð Orkunnar á Sauðárkróki.  Um er að ræða endurnýjun á leyfi, fyrir bensínstöðina að Skagfirðingabraut 29, Sauðárkróki og fyrirhugað er að gefa út starfsleyfið til 12 ára, samkvæmt meðfylgjandi starfsleyfisskilyrðum. Niðurgrafnir tankar eru tvöfaldir og frá árinu 2013. Hægt er að gera athugasemdir við starfsleyfisskilyrðin til 1. maí 2024. Athugasemdir skal gera skriflega og senda til Heilbrigðiseftirlits Norðurlands vestra.