Endurnýjun á starfsleyfi til kynningar fyrir Hjólbarðaverkstæði Óskars á Sauðárkróki

Í samræmi við reglugerð nr. 550/2018, um losun frá atvinnurekstri og mengunarvarnareftirlit, eru starfsleyfisskilyrði til kynningar hjá Heilbrigðiseftirliti Norðurlands vestra á Sauðárkróki að Sæmundargötu 1, fyrir Hjólbarðaverkstæði Óskar. Um er að ræða endurnýjun á leyfi til reksturs verkstæðis, að Borgartúni 6b, Sauðárkrókur. Fyrirhuguð starfsleyfisskilyrði fyrir starfsemina eru samræmd starfsleyfisskilyrði fyrir bifreiðaverkstæði og skyldan rekstur.

Hægt er að gera athugasemdir við starfsleyfisskilyrði fyrir verkstæðið að Borgarteig 6, til 5. apríl nk. Athugasemdir skal gera skriflega og senda til Heilbrigðiseftirlits Norðurlands vestra.