Drög að starfsleyfisskilyrðum fyrir Skagafjörð, kt. 550698 2349, til þess að starfrækja efnistöku á svæði austan við eldri námu á Gránumóum við Sauðárkrók, eru hér til kynningar.

Í samræmi við reglugerð nr. 550/2018, um losun frá atvinnurekstri og mengunarvarnareftirlit, eru starfsleyfisskilyrðin til kynningar hjá Heilbrigðiseftirliti Norðurlands vestra á Sauðárkróki að Sæmundargötu 1, fyrir efnistökuna að Gránumóum og hægt er að gera athugasemdir við starfsleyfisskilyrðin, til 5. maí  2023.

Athugasemdir skal gera skriflega og senda til Heilbrigðiseftirlits Norðurlands vestra, en hér má sjá drögin, en þau eru samræmd starfsleyfisskilyrði Umhverfisstofnunar og heilbirgðiseftirlita.