Endurnýjun á starfsleyfi Olís til kynningar fyrir bensínstöð við Bygljubyggð 2a, í Ólafsfirði.

Í samræmi við reglugerð nr. 550/2018, um losun frá atvinnurekstri og mengunarvarnareftirlit, eru starfsleyfisskilyrði fyrir Olís  hf. kt. 500269-3249, til kynningar hjá Heilbrigðiseftirliti Norðurlands vestra á Sauðárkróki að Sæmundargötu 1, fyrir bensínstöð Olís í Ólafsfirði.  Um er að ræða endurnýjun á leyfi, fyrir bensínstöðina í Ólafsfirði og fyrirhugað er að gefa út starfsleyfið til 12 ára, samkvæmt meðfylgjandi starfsleyfisskilyrðum. Hægt er að gera athugasemdir við starfsleyfisskilyrðin til 4. nóvember 2022. Athugasemdir skal gera skriflega og senda til Heilbrigðiseftirlits Norðurlands vestra.

Hér má sjá greinargerð Olís um starfsemina, búnað og mengunarvarnir sjá: