Staðfest hefur verið að sýni sem Heilbrigðiseftirlitið tók á Hofsósi, innihélt Escherichia coli (E. coli) gerla í talsverðu magni eða 140/100 ml.

Í samræmi við 14. gr. reglugerðar um neysluvatn nr. 536/2001,ráðleggur Heilbrigðiseftirlitið í samráði við Matvælastofnun að  neysluvatnið á Hofsósi, sé soðið fyrir neyslu.

Heilbrigðiseftirlitið mun láta íbúa vita þegar nauðsynlegum aðgerðum til úrbóta á vatnsveitunni er lokið, sem tryggja endurheimt vatnstgæða.