Starfsleyfi til kynningar fyrir Bifreiðaverkstæði Kaupfélags Skagfirðinga á Sauðárkróki

Í samræmi við reglugerð nr. 550/2018, um losun frá atvinnurekstri og mengunarvarnareftirlit, eru starfsleyfisskilyrði til kynningar hjá Heilbrigðiseftirliti Norðurlands vestra á Sauðárkróki að Sæmundargötu 1, fyrir bifreiðaferkstæði KS að Hesteyri 2. Um er að ræða endurnýjun á leyfi til reksturs bifreiðaverkstæðis, að Hesteyri 2. Fyrirhuguð starfsleyfisskilyrði fyrir starfsemina eru samræmd starfsleyfisskilyrði fyrir bifreiðaverkstæði og skyldan rekstur.

Hægt er að gera athugasemdir við starfsleyfisskilyrði fyrir verkstæðið, til 19. maí nk. Athugasemdir skal gera skriflega og senda til Heilbrigðiseftirlits Norðurlands vestra.