Í samræmi við reglugerð nr. 550/2018, um losun frá atvinnurekstri og mengunarvarnareftirlit, eru starfsleyfisskilyrði til kynningar hjá Heilbrigðiseftirliti Norðurlands vestra á Sauðárkróki að Sæmundargötu 1, fyrir Efnalaug Sauðárkróks, kt: 131147 2449, að Borgarflöt 1, 550 Sauðárkrókur. Um er að ræða efnalaug og þvottahús. Fyrirhuguð starfsleyfisskilyrði fyrir starfsemina eru hér, en um er að ræða almenn samræmd starfsleyfiskilyrði Umhverfisstofnunar og heilbrigðiseftirlita sveitarfélaga. Hægt er að gera athugasemdir við starfsleyfisskilyrðin, til 18. maí nk.

Athugasemdir skal gera skriflega og senda til Heilbrigðiseftirlits Norðurlands vestra.