Starfsleyfi til kynningar fyrir Bakkafugl ehf. Tannstaðabakka
Í samræmi við reglugerð nr. 550/2018, um losun frá atvinnurekstri og mengunarvarnareftirlit, eru starfsleyfisskilyrði til kynningar hjá Heilbrigðiseftirliti Norðurlands vestra á Sauðárkróki að Sæmundargötu 1, fyrir kjúklingabú Bakkafugls ehf., kt: 511021 0490, að Tannstaðabakka,  530 Hvammstanga. Um er að ræða kjúklingabú en starfsleyfisskilyrði fyrir starfsemina eru hér að neðan, en um er að ræða samræmd starfsleyfiskilyrði Umhverfisstofnunar og heilbrigðiseftirlita sveitarfélaga fyrir þauleldi. Hægt er að gera athugasemdir við starfsleyfisskilyrðin, til 22 nóvember nk. Athugasemdir skal gera skriflega og senda til Heilbrigðiseftirlits Norðurlands vestra