Tímabundið starfsleyfi- Niðurrif á mannvirkjum á Eyri í Húnaþingi vestra

Í samræmi við reglugerð nr. 550/2018, um losun frá atvinnurekstri og mengunarvarnareftirlit, eru starfsleyfisskilyrði vegna niðurrifs á gömlu íbúðarhúsi í landi Eyrar lnr. 144421 sem skráð er sem geymsla mhl. 03, 04 og 05. til kynningar hjá Heilbrigðiseftirliti Norðurlands vestra á Sauðárkróki að Sæmundargötu 1. Um er að ræða tímabundið starfsleyfi til niðurrifs og flutnings á mannvirkjum frá Eyri 531 Hvammstanga, eigendur eru Kolbrún Grétarsdóttir kt. 080469-5279 og Jóhann Albertsson kt. 240758-3859. Fyrirhuguð starfsleyfisskilyrði fyrir starfsemina eru hér, en hægt er að gera athugasemdir við starfsleyfisskilyrðin, til 30. júní nk. Athugasemdir skal gera skriflega og senda til Heilbrigðiseftirlits Norðurlands vestra.