Starfsleyfi til kynningar fyrir Skotfélagið Ósmann Meyjarlandi Reykjaströnd
Í samræmi við reglugerð nr. 550/2018, um losun frá atvinnurekstri og mengunarvarnareftirlit, eru starfsleyfisskilyrði fyrir Skotfélagið Ósmann kt. 500791 2099, til kynningar hjá Heilbrigðiseftirliti Norðurlands vestra á Sauðárkróki að Sæmundargötu 1, fyrir skotvöll félagsins að Meyjarlandi Reykjaströnd, 551 Sauðárkrókur. Um er að ræða endurnýjun á leyfi, fyrir skovöllinn. 
Fyrirhugað er að gefa út starfsleyfið til 12 ára, samkvæmt meðfylgjandi starfsleyfisskilyrðum. Hægt er að gera athugasemdir við starfsleyfisskilyrðin til 20. júní 2021. Athugasemdir skal gera skriflega og senda til Heilbrigðiseftirlits Norðurlands vestra.