Lee Ann Maginnis kosin formaður Heilbrigðisnefndar Norðurlands vestra

Lee Ann Maginnis var kosin formaður Heilbrigðisnefndar Norðurlands vestra, á fundi nefndarinnar, sem fram fór þann 26. febrúar 2021. Lee Ann sem fædd er árið 1985 og er menntuð sem lögfræðingur og kennari. Hún er  búsett á Blönduósi og starfar sem umsjónarmaður dreifnáms Fjölbrautarskóla Norðurlands vestra  Auk Lee Ann sitja í nefndinni Ína Ársælsdóttir  Húnaþingi vestra varaformaður, Haraldur Þór Jóhannsson Skagfirði, Margrét Eva Ásgeirsdóttir Skagafirði, Nanna Árnadóttir Fjallabyggð, og Guðný Kristjánsdóttir, fulltrúi SA.   Starfssvæði nefndarinnar er víðfemt, en það nær frá og með Fjallabyggð í austri og vestur til Borðeyrar og síðan alla leið suður á Hveravelli.