Endurnýjun á starfsleyfi N1 til kynningar fyrir bensínstöðina við Staðarskála
Í samræmi við reglugerð nr. 550/2018, um losun frá atvinnurekstri og mengunarvarnareftirlit, eru starfsleyfisskilyrði fyrir N1 ehf. kt. 411003-3370, til kynningar hjá Heilbrigðiseftirliti Norðurlands vestra á Sauðárkróki að Sæmundargötu 1, fyrir bensínstöð N1 að Staðarskála. Um er að ræða endurnýjun á leyfi, fyrir bensínstöðina að Staðarskála. Fyrirhugað er að gefa út starfsleyfið til 12 ára, samkvæmt meðfylgjandi starfsleyfisskilyrðum. Hægt er að gera athugasemdir við starfsleyfisskilyrðin til 24. mars 2021. Athugasemdir skal gera skriflega og senda til Heilbrigðiseftirlits Norðurlands vestra.