Áhaldahús Fjallabyggðar

Í samræmi við reglugerð nr. 550/2018, um losun frá atvinnurekstri og mengunarvarnareftirlit, eru starfsleyfisskilyrði til kynningar hjá Heilbrigðiseftirliti Norðurlands vestra á Sauðárkróki að Sæmundargötu 1, fyrir Áhaldahús Fjallabyggðar, kt: 580706 0880, að Lækjargötu, 580 Siglufjörður. Um verður að ræða viðgerð-, viðhalds- og þvotta- og geymsluaðstöðu fyrir áhaldahús Fjallabyggðar. Fyrirhuguð starfsleyfisskilyrði fyrir starfsemina eru hér , en um er að ræða almenn skilyrði fyrir mengandi starfsemi. Hægt er að gera athugasemdir við starfsleyfisskilyrðin, til 8. janúar  2021. Athugasemdir skal gera skriflega og senda til Heilbrigðiseftirlits Norðurlands vestra.