Starfsleyfi til kynningar fyrir brennu á Sauðárkróki

Í samræmi við reglugerð nr. 550/2018, um losun frá atvinnurekstri og mengunarvarnareftirlit, eru starfsleyfisskilyrði til kynningar hjá Heilbrigðiseftirliti Norðurlands vestra á Sauðárkróki að Sæmundargötu 1, fyrir brennu á Sauðárkróki. Um er að ræða áramótabrennu. Fyrirhuguð starfsleyfisskilyrði fyrir starfsemina eru  starfsleyfisskilyrði fyrir brennur á Norðurlandi vestra. Hægt er að gera athugasemdir við starfsleyfisskilyrðin fyrir brennuna sem fyrirhugað er að halda á opnu svæði, austan leikskólann Ársali, við Borgargerði á Sauðárkróki, til 19. desember nk. Athugasemdir skal gera skriflega og senda til Heilbrigðiseftirlits Norðurlands vestra.