Bifreiðaþjónusta Dælis ehf. Víðidal

Í samræmi við reglugerð nr. 550/2018, um losun frá atvinnurekstri og mengunarvarnareftirlit, eru starfsleyfisskilyrði til kynningar hjá Heilbrigðiseftirliti Norðurlands vestra á Sauðárkróki að Sæmundargötu 1, fyrir bifreiðaþjónustu Dælis ehf,
kt: 420516-2820, að Dæli Víðidal, 531 Hvammstangi. Um verður að ræða ýmsa þjónustu við bíla m.a. þrif og dekkjaskipti. Fyrirhuguð starfsleyfisskilyrði fyrir starfsemina eru hér , en um er að ræða almenn skilyrði fyrir mengandi starfsemi. Hægt er að gera athugasemdir við starfsleyfisskilyrðin, til 19. desember nk. Athugasemdir skal gera skriflega og senda til Heilbrigðiseftirlits Norðurlands vestra.