Rannsóknardeild KS

Í samræmi við reglugerð nr. 550/2018, um losun frá atvinnurekstri og mengunarvarnareftirlit, eru starfsleyfisskilyrði til kynningar hjá Heilbrigðiseftirliti Norðurlands vestra á Sauðárkróki að Sæmundargötu 1, fyrir Rannsóknardeild KS, kt: 680169 5009, að Háeyri 1, 550 Sauðárkróki. Um er að ræða rannsóknarstofa þar sem notuð eru hættuleg efni og eða meðhöndluð sóttmenguð sýni. Fyrirhuguð starfsleyfisskilyrði fyrir starfsemina eru hér. Hægt er að gera athugasemdir við starfsleyfisskilyrðin, til 24. september nk. Athugasemdir skal gera skriflega og senda til Heilbrigðiseftirlits Norðurlands vestra.