Starfsleyfi til kynningar fyrir FISK Seafood, Sauðárkróki

Í samræmi við reglugerð nr. 550/2018, um losun frá atvinnurekstri og mengunarvarnareftirlit, eru starfsleyfisskilyrði til kynningar hjá Heilbrigðiseftirliti Norðurlands vestra á Sauðárkróki að Sæmundargötu 1, fyrir, fiskverkun FISK Seafood hf.    kt. 461289-1269, Háeyri 1, Sauðárkróki. Fyrirhuguð starfsleyfisskilyrði fyrir starfsemina eru samræmd starfsleyfisskilyrði fyrir fiskvinnslur. Hægt er að gera athugasemdir við starfsleyfisskilyrðin, til 24. september nk. hér er umsókn FISK-Seafood.  Athugasemdir skal gera skriflega og senda til Heilbrigðiseftirlits Norðurlands vestra.