Tímabundið starfsleyfi- Niðurrif á mannvirkjum Olíudreifingar hf. á Sauðárkróki

Í samræmi við reglugerð nr. 550/2018, um losun frá atvinnurekstri og mengunarvarnareftirlit, eru starfsleyfisskilyrði Olíudreifingar hf. kt: 050959-2069,  til kynningar hjá Heilbrigðiseftirliti Norðurlands vestra á Sauðárkróki að Sæmundargötu 1. Um er að ræða tímabundið starfsleyfi til niðurrifs og flutnings á mannvirkjum að Eyrarvegi á Sauðárkróki. Fyrirhuguð starfsleyfisskilyrði fyrir starfsemina eru hér, en hægt er að gera athugasemdir við starfsleyfisskilyrðin, til 27. júlí nk. Athugasemdir skal gera skriflega og senda til Heilbrigðiseftirlits Norðurlands vestra.