Starfsleyfi til kynningar fyrir Fiskmarkað FMS á Siglufirði

Í samræmi við reglugerð nr. 550/2018, um losun frá atvinnurekstri og mengunarvarnareftirlit, eru starfsleyfisskilyrði til kynningar hjá Heilbrigðiseftirliti Norðurlands vestra á Sauðárkróki að Sæmundargötu 1, fyrir, Fiskmarkað FMS hf. og vörumóttöku, að  Hafnargötu 8, Siglufirði. Fyrirhuguð starfsleyfisskilyrði fyrir starfsemina eru samræmd starfsleyfisskilyrði fyrir fiskvinnslur. Hægt er að gera athugasemdir við starfsleyfisskilyrðin, til 28. júní nk. Athugasemdir skal gera skriflega og senda til Heilbrigðiseftirlits Norðurlands vestra.