Starfsleyfi til kynningar fyrir Sverrir Björnsson ehf. Siglufirði

Í samræmi við reglugerð nr. 550/2018, um losun frá atvinnurekstri og mengunarvarnareftirlit, eru starfsleyfisskilyrði til kynningar hjá Heilbrigðiseftirliti Norðurlands vestra á Sauðárkróki að Sæmundargötu 1, fyrir, fiskverkun Sverris Björnssonar ehf.    kt. 470384-0189, að  Vesturtanga 7-11, Siglufirði. Fyrirhuguð starfsleyfisskilyrði fyrir starfsemina eru samræmd starfsleyfisskilyrði fyrir fiskvinnslur. Hægt er að gera athugasemdir við starfsleyfisskilyrðin, til 20. maí nk.  Athugasemdir skal gera skriflega og senda til Heilbrigðiseftirlits Norðurlands vestra.