Tímabundið starfsleyfi til kynningar á niðurrifi RARIK á byggingu við Reykjabraut

Í samræmi við reglugerð nr. 550/2018, um losun frá atvinnurekstri og mengunarvarnareftirlit, eru starfsleyfisskilyrði til kynningar hjá Heilbrigðiseftirliti Norðurlands vestra á Sauðárkróki að Sæmundargötu 1, vegna niðurrifs RARIS kt. 520269-2669, á byggingu að Reykjum við Reykjabraut, 541 Blönduósi. Fyrirhuguð starfsleyfisskilyrði fyrir starfsemina eru sértæk starfsleyfi fyrir niðurrif á mannvirkjum. Hægt er að gera athugasemdir við starfsleyfisskilyrði fyrir starfsemina, til 14. apríl nk. Athugasemdir skal gera skriflega og senda til Heilbrigðiseftirlits Norðurlands vestra.