Endurnýjun á starfsleyfi fyrir Trésmíði ehf. á Ólafsfirði

Í samræmi við reglugerð nr. 550/2018, um losun frá atvinnurekstri og mengunarvarnareftirlit, eru starfsleyfisskilyrði til kynningar hjá Heilbrigðiseftirliti Norðurlands vestra á Sauðárkróki að Sæmundargötu 1, fyrir Trésmíði ehf. kt: 640191-2369, að Austurstíg 3, 625 Ólafsfirði. Um er að ræða trésmíðaverkstæði. Fyrirhuguð starfsleyfisskilyrði fyrir starfsemina eru hér, en um er að ræða samræmd starfsleyfiskilyrði Umhverfisstofnunar og heilbrigðiseftirlita sveitarfélaga. Hægt er að gera athugasemdir við starfsleyfisskilyrðin, til 15. apríl nk. Athugasemdir skal gera skriflega og senda til Heilbrigðiseftirlits Norðurlands vestra.