Starfsleyfi til kynningar fyrir bensínstöð Olís að Oddagötu  2, á Skagaströnd

Í samræmi við reglugerð nr. 550/2018, um losun frá atvinnurekstri og mengunarvarnareftirlit, eru starfsleyfisskilyrði Olíuverslunar  Íslands hf. kt. 500269-3249, til kynningar hjá Heilbrigðiseftirliti Norðurlands vestra á Sauðárkróki að Sæmundargötu 1, fyir bensínstöð Olíuverslunar Íslands / ÓB. Um er að ræða endurnýjun á leyfi, fyrir bensínstöðina á Skagaströnd, að Oddagötu 2 .

Fyrirhugað er að gefa út starfsleyfið til 12 ára, samkvæmt meðfylgjandi starfsleyfisskilyrðum. Hægt er að gera athugasemdir við starfsleyfisskilyrðin til 10. apríl 2020. Athugasemdir skal gera skriflega og senda til Heilbrigðiseftirlits Norðurlands vestra.