Starfsleyfi til kynningar fyrir sorphirðu og margvíslegrar starfsemi Terra á Blönduósi

Í samræmi við reglugerð nr. 550/2018, um losun frá atvinnurekstri og mengunarvarnareftirlit, eru starfsleyfisskilyrði Terra ehf. 410283-0349, til kynningar hjá Heilbrigðiseftirliti Norðurlands vestra á Sauðárkróki að Sæmundargötu 1, fyir starfsemi Terra að Ægisbraut 9, á Blönduósi. Um er að ræða sorphirðu, flutningur úrgangs, söfnunarstöð og verkstæði.  Hér má sjá starfsleyfisskilyrðin fyrir starfsemina, sem fyrirhugað er að gefa út til 12 ára.  Hægt er að gra athugasemdir við starfsleyfisskilyrðin til 12 mars 2020. Athugasemdir skal gera skriflega og senda til Heilbrigðiseftirlits Norðurlands vestra.