Starfsleyfi til kynningar fyrir G.J. rétting og sprautun á Hvammstanga

Í samræmi við reglugerð nr. 550/2018, um losun frá atvinnurekstri og mengunarvarnareftirlit, eru starfsleyfisskilyrði til kynningar hjá Heilbrigðiseftirliti Norðurlands vestra á Sauðárkróki að Sæmundargötu 1, fyrir G.J. rétting og sprautun,          kt: 130454-5779, að Búlandi 1,  530 Hvammstangi. Um er að ræða rétting- og sprautuverkstæði. Fyrirhuguð starfsleyfisskilyrði fyrir starfsemina eru hér, en um er að ræða samræmd starfsleyfiskilyrði Umhverfisstofnunar og heilbrigðiseftirlita sveitarfélaga fyrir réttingaverkstæði. Hægt er að gera athugasemdir við starfsleyfisskilyrðin, til 7. febrúar 2020. Athugasemdir skal gera skriflega og senda til Heilbrigðiseftirlits Norðurlands vestra.